Börkur Vígþórsson
October 16, 2024
Örn Hjálmarsson
October 16, 2024

Iðunn og Valgarður

Við Halli kynntumst í gegnum tónlistina fyrir um tveimur áratugum og snérust í fyrstu að mestu um tónlistina.

Halli hafði forgöngu um að við Fræbbblarnir spiluðum í Kaupmannahöfn og við Fræbbblar gáfum út lagið hans „Fölar rósir,“ sem hann söng með okkur. Honum fannst við spila lagið frekar hratt á fyrsta rennsli á sameiginlegri æfingu og ætlaði að stinga upp á að við prófuðum aðeins rólegri gír.

En áður en hann komst að var ég búinn að segja við hann „flott lag, virkar vel … en við þurfum reyndar að spila það talsvert hraðar!“.

En ágæt kynni frá tónlistinni þróuðust fljótt í annað og meira. Við hjónin hittumst reglulega yfir góðum mat, fórum nokkrum sinnum saman í frí og fjölskyldurnar kynntust í framhaldinu, Halli hjálpaði syni okkar, Guðjóni, við upptökur, sat og glamraði á gítar með Viktori og hvatti áfram – og Sölvi kom með okkur og foreldrum sínum til Spánar í eftirminnilegt sumarfrí – svo eitthvað sé nefnt.

Á ensku er víst talað um að klæðast hjartanu utan á erminni, Halli var fullur orku, gefandi, áhugasamur um allt sem hann tók sér fyrir hendur, einlægur og heiðarlegur –
húmorinn alltaf til staðar og hann var óhræddur við að segja það sem honum fannst.

Halli hafði í rauninni allt, góða fjölskyldu, einstaka eiginkonu og hæfileikaríka syni sem hann var stoltur af. Hann var frábær laga- og textahöfundur, kennari sem kveikti
tónlistaráhuga hjá nemendum með óvenjulegri og lifandi nálgun – og skemmtilegur
sögumaður – bæði með og án tónlistar.

Erfiður sjúkdómur kom í veg fyrir að hann yrði lengur með okkur, hans verður sárt saknað, en við eigum allar minningarnar um allar góðu stundirnar og öll frábæru lögin.

Iðunn Magnúsdóttir, Valgarður Guðjónsson. 

Iðunn og Valgarður
Þessi vefsíða notar vafrakökur til að bæta upplifun þína. Með því að nota þessa vefsíðu samþykkir þú persónuverndarstefnu okkar.
Nánar