Plata vikunnar á Rás 2 dagana 12.-16.apríl 2021 var síðasta plata Halla, Söngur vesturfarans. Platan var fyrirferðamikil í öllum þáttum Rásar 2 þessa daga og lauk svo með því að tónlistarsérfræðingar RÚV dæmdu plötuna. Umfjölluninni lauk síðan með þætti þar sem platan var spiluð í heild sinni með ítarlegri umfjöllun á milli laga.
Fjölskylda Halla þakkar RÚV fyrir þann áhuga sem útgáfunni var sýnd með þessum hætti.