Ég horfi út um glugga,frá umferð heyrist kliður.
Regndropar falla,renna á rúðunni niður.
Fólk á hlaupum,eitthvað að gerast hjá öllum,
ýmist að skoða eða kaupa,eyða sínum þúsundköllum.
Út á götu er margt að skoða,
menn og málefni að ýmsu tagi,
sem á einn eða annan hátt tilheyra,
þessu hvaðvirka, skulduga, þjóðfélagi.
Í útvarpi raddir,spjallandi um vandamálin,
með svör á reiðum höndum,er ávallt þjóðarsálin.
Í leikriti lífsins,er sólskin mikill fengur,
þó svo í öllum veðrum,lífið sinn vanagang gengur.
Út á götu er margt að skoða,
menn og málefni að ýmsu tagi,
sem á einn eða annan hátt tilheyra,
þessu hvaðvirka, litla, þjóðfélagi.
Út á götu er margt að skoða,
menn og málefni að ýmsu tagi,
sem á einn eða annan hátt tilheyra,
þessu hvaðvirka, litla, þjóðfélagi.
Ég horfi út um glugga,frá umferð heyrist kliður.
Regndropar falla,renna á rúðunni niður.
Í útvarpi raddir,spjallandi um vandamálin,
með svör á reiðum höndum,er ávallt þjóðarsálin.
Út á götu er margt að skoða,
menn og málefni að ýmsu tagi,
sem á einn eða annan hátt tilheyra,
þessu hvaðvirka, skulduga, þjóðfélagi.
Sem á einn eða annan hátt tilheyra,
þessu hvaðvirka, litla, krúttlega, þjóðfélagi.