Hjördís Kristjánsdóttir
October 16, 2024
Sigurborg Hrönn Sigurbjörnsdóttir
October 16, 2024

Sigurður Sigurbjörnsson

Leiðin er löng, strembin og ströng en hann er yndislegur dagurinn í dag.

Ég gleymi aldrei þegar við hittumst fyrst Halli. Það var á Rauðarárstíg 7, ég var að fara að hitta nýja kærastann hennar Steinu Möggu systir.  Ég gekk upp stigann en þú varst á leið niður. Þú heilsaðir mér vingjarnlega en hélst svo áfram. Ég hélt áfram upp á næstu hæð og þar mætti ég þér aftur og aftur kastaðir þú á mig vinalegri kveðju. Ég stóð ringlaður eftir, en áttaði mig síðar á því að þetta var bara hann Gulli bróðir þinn sem var á sömu leið og þú að hjálpa þér að bera upp dót.
Má ég nokkuð þvo bílinn þinn? Ætli þetta hafi ekki verið með fyrstu samtölum okkar heima á Vígholtsstöðum hérna um árið þegar við hittumst fyrst þar. Það var auðsótt mál að fá að þvo bílinn þinn. En þú vissir fljótlega eins og allir að aðalástæðan var kannski ekki bara áhugi á bílaþrifum, heldur áhugi á að fá að keyra. Ég lagði þennan þvott á mig til að fá að keyra bílinn þinn af bílastæðinu við húsið heima og að fjárhúsunum og til baka eftir þvott. Og ekki man ég hversu oft ég þvoði bílinn þinn en það var mjög oft og mér þótti vænt um það og mér fór að þykja vænt um nýja kærastann hennar Steinu systir og hélst sú væntumþykja alla tíð.
Þú tókst mér svo vel frá fyrstu kynnum Halli minn og vinátta okkar hefur verið traust og trú alla tíð og fundir okkar verið margir þar sem við deildum daglegum raunum okkar, jákvæðum sem neikvæðum, gömlum sem nýjum. Við héldum trúnað hvor við annan og í seinni tíð sagðir þú við mig að ég væri eins og bróðir þinn. Nú síðast sagðir þú það við mig þegar við áttum eitt af þessum samtölum okkar í fallega sumarhúsinu ykkar Steinu systir fyrir vestan, helgina sem þú féllst frá. Og nú er þessi síðasti fundur okkar mér svo ólýsanlega kær. VIð kvöddumst svo innilega og sögðum hvor öðrum hver hugur okkar var til hvors annars. Það var gott.
Þú varst svo einstakur maður Halli og þú átt þátt í svo mörgum fallegum púslum í mínu lífi og ég get nefnt svo margt. Ég á svo yndislega minningu þegar þú varst að taka upp fyrsta diskinn þinn ,Undir hömrunum háu. Þú lofaðir mér að vera með þér og fylgjast með öllu ferlinu. Vera með þegar lögin voru tekin upp í stúdíóinu. Þegar þú fórst með Einari Óla frænda þínum upp í Borgarfjörð að taka myndina framan á diskinn. Þú varst vinur minn og bróðir, og þannig hefur það alltaf verið. Ég er svo þakklátur fyrir að hafa fengið húsaskjól hjá þér og Steinu í Maríubakka og Jörfabakka þegar ég var í framhaldsskóla. Eftir að ég fékk bílpróf treystir þú mér fyrir því að keyra þig á þá staði sem þú fórst að spila á og ég var í miðasölunni. Þú brostir og talaðir oft um það hvað það væri fínt að hafa mig í miðasölunni því þá fengir þú peningana slétta og rétt flokkaða.
Ég á svo margar minningar með þér Halli sem ekki er hægt að skrifa um allar hér. Við töluðum oft um söguna þegar við vorum á leiðinni vestur einn veturinn og ég gekk á undan í blindbyl til að finna stikurnar og við fengum gistingu á sveitabæ. Og það þurfti endilega að vera eini sveitabærinn þar sem ekki var neitt sjónvarp. En við spiluðum og töluðum fram í nóttina og komumst í sveitina okkar daginn eftir.
Við fórum stundum saman að veiða. Það var alltof sjaldan. Takk fyrir alla hjálpsemina þegar ég þurfti einhvern til að hjálpa mér við að leggja parket, flísar eða eitthvað í þá áttina. Og síðast en ekki síðst langar mig að þakka þér sértaklega fyrir ástina sem þú sýndir strákunum mínum alla tíð. Hvað við erum þakklátir fyrir bátsferðirnar og fyrir örlætið þitt varðandi fjórhjólin þín. Þau hafa veitt okkur mikla gleði í gegnum árin.
Helgina 13-15.september síðastliðinn fór ég vestur með strákana mína eins og svo oft áður. Þú fórst líka vestur. Þú varst að fara að hjálpa Jóa og fjölskyldu í Gröf við að smala. Samband ykkar Jóa og fjölskyldu var einstakt og fallegt og þú varst að koma vestur til þess að hjálpa þeim við að smala fénu heim. Ég fékk mér göngutúr til þín þessa helgi og við spjölluðum saman vel og lengi eins og við gerðum svo oft í sveitinni þegar við hittumst.
Þegar ég skrifa þetta er ég í raun ekki enn búinn að átta mig á því að þú sért farinn frá okkur Halli minn, en minningarnar um þig eru fallegar og þær hafa sko verið sagðar síðustu daga og munu verða sagðar um ókomna daga og ár og tónlistin þín og textar munu hljóma áfram. Takk fyrir að hafa verið svona góður við fólkið þitt, strákana mína og foreldra mína alla tíð.
Ást og friður
Siggi mágur
Sigurður Sigurbjörnsson
Þessi vefsíða notar vafrakökur til að bæta upplifun þína. Með því að nota þessa vefsíðu samþykkir þú persónuverndarstefnu okkar.
Nánar