Um daginn rakst ég á upptöku í símanum mínum sem tekin var þann 2.júlí 2018. Ég hafði tekið eftir laxi í ánni heima og minntist á það við Halla að mig langaði að reyna að veiða laxinn. Ég spurði Halla hvort hann væri ekki til í að koma með. Það þurfti auðvitað ekki að bjóða honum þetta tvisvar, og Halli rauk af stað og ég og Adam Smári minn með honum. Í tilefni af afmælisdegi Halla í dag 1.desember 2021 langar mig að deila þessari veiðiferð með ykkur.
Blessuð sé minnig elsku Halla.
Sigurður Sigurbjörnsson